Ég er ung og í skóla
ég er í sögu áfanga með þykka bók um sögu Íslands og heimsins frá 1800 til árþúsundmóta.
Miðað við mína upplifun á hvernig stjórnmálum hefur verið háttað á landinu eftir að ég fór að lesa mér til um þau og fræðast, og þekkingu mína á lýðræðisbaráttuni í gegnum síðust 200 ár.
Það eru ekki mörg ár síðan að konur og venjulegir menn fengu kosningarétt sem dæmi má nefna að árið 1983 voru ekki öll ríki í Evrópu búin að gefa konum kosningarétt, uuu já 1983!!! það er ótrúlega stutt síðan, og sérstaklega fyrir þetta vel fullorðna fólk sem er svo þröngsýnt og þjakað af einhverjum skoðunum sem ég get ekki ýmundað mér hvaðan komi eiginlega.
þá komum við að LÝÐRÆÐISBARÁTTUNNI! Nú spyr ég þetta vel fullorðna fólk með þessu blessuðu skoðanir sínar sem eru að prumpa á forsetan okkar :
Hvernig hefur lýðræðisbaráttan verið í Evrópu frá 1800 ?
Hvað varð til þess að einræðiskonungar sögðu af sér ?
Hvað varð til þess að þú kæri lesandi fékkst réttin til þess að kjósa þann forseta sem þú kærir þig um ?
Og hvað varð til þess að þú fékkst að kjósa um t.d. Icesave?
Hver gaf þér leyfi til þess að kjósa um Icesave ?
Allavegana hvernig ég sé þetta er gríðalegur fjöldi "kúgaðra millistéttar aula" búnir að vera klókir, snjallir og samviskusamir síðustu hundruð ára til þess mögulega að þú kæri lesandi fékkst einhvað um einhvað að segja!
Og svo auðvitað er Ólafur Ragnar með bein í nefinu og þorir að standa upp á móti stjórn landsins og hlusta á almenningin og gefa þér og mér völd til þess að velja og hafna í mikilvægum málum sem munu tengjast okkar framtíð og auðvitað börn og barna börn okkar.
Mér persónulega fanst mjög magnað að lesa um þessa sögu, sérstaklega Evrópu og þróun hennar og hvaða áhrif tilteknir atburðir höfðu áhrif víðar.
Ekki má gleyma Ármann á Alþingi sem fjallaði m.a. um áhuga Íslendinga að endurreisa Alþingi og fá eigið löggjafarþing.
Eða Fjölnir en þeir sem stóðu að baki því vildu einnig endurreisa Alþingi og vildu að Íslendingar fengju eigið ráðgjafaþing. Í því blaði urðu vísur frægar eftir Jónas Hallgrímsson sem margir þekkja.
En nei prumpum yfir þetta allt saman og gerum þetta persónulegt "að Ólafur sé haldin sjálfsdýrkun"
Ég segi bara WTF! hverjum er ekki skít sama um það ? svo lengi sem hann sinnir starfi sínu?
Eða Jóhanna "blablabla" eða Steingrímur "blablabla" mér er bara nokkuð sama um þau skítköst sem þau henda á hvort annað !
Ég er komin með hundleið á þessari rusl blaðamennsku sem er að þrífast svo vel á landinu okkar, með tilstilli tilfinningafróun þess fólks sem elskar að lesa um persónulegan ágreining fólksins sem á að stýra þessu landi á beina braut.
Ég er ekki bara að tala um Ólaf, Jóhönnu og Steingrím, það er hiklaust fleira fólk sem ég nenni ekki að telja upp.
Fjölnir var sennilega ekki ruslrit allavegana ekki eins og tíðkast í dag, en samkvæmt mínum skilningi var það vakningarrit í hreintungustefnu, þjóðfrelsis- og framfaramálum.
Og kæri þingmaður ef þú þolir ekki harðort fólk með sterkar skoðanir, hvort heldur sem það séu samflokks menn þínir eða ekki, plíííís ekki grenja um það í fjölmiðlum, það er svoooo augljóst að þú ert ekki vel að þér. Fáðu þér heldur trúnaðar vin til að grenja í sem nennir að hlusta á þetta. Þjóð veit ef þrír eru!
Ekki skíta einhvern annan út ef þú ert ósáttur eina sem það hefur uppá sig að vinda er lélegt mannorð.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
Það orðspor sem Ólafur hefur lifir í skólanum mínum og heyrist það vel en orðstír til dæmis ríkisstjórnarinnar er mjög lélegt og þykir mér aumkunnarvert að þið flokkar reynið að gabba börn í skólum til þess að kjósa ykkur með því að segja:
"við ætlum að lækka áfengis aldurinn"
"við ætlum að lengja fæðingarorlofið"
Og svo framvegis.
Það sem þið gerið með þessu er í stigum
1. stig : einstaklingur að kjósa í fyrsta skiptið kýs ykkur vegna þessara loforða.
2. stig : þið auðvitað gerið þetta ekki því það er ekki hagstætt og ekki það nauðsynlegt m.ö.o. þið svíkið einstaklingana sem eru að kjósa í fyrsta skiptið.
3. stig : þau fara að uppgötva það seinna einnig vegna þess að í skólum er okkur kennt að trúa ykkur ekki í blindni því þið eruð alltaf að svíkja.
4. stig : þetta snýst í andhverfu sína og þau þola ykkur ekki og eru ykkur ekki hliðholl sem þýðir einfaldlega að þau kjósa ykkur ekki aftur.
Og ykkur finnst það "skrípaleikur" að Jón Gnarr var kosin borgarstjóri eða að minsta kosti í fyrstu.
Það er önnur kynslóð að stíga upp.
Hvað gerði hann?
Hvað sagði hann og hvaða leiðir fór hann?
Hann fór einmitt hina leiðina og það virtist virka og engin getur verið fúll útí hann réttilega vegna þess að hann lofaði að geta ekki staðið við þetta og var mjög skýr í því máli.
En aftur á móti þá tala ég einungis af minni reynslu og þekkingu, ég veit vel að þið vel fullorðna liðið gætuð fyllt heila bók um það sem ég ekki veit og hef ekki upplifað en ekki gleyma því að ég get sömuleiðis fyllt heila bók af því sem þið ekki vitið.
Ég er ekki að skrifa niður til neins einstaklings persónulega, minn vilji einungis er að allir taki sér 2 mínútur til þess að stoppa anda góðu inn og út með það vonda, finni kærleikan í sínu hjarta og vinni saman að uppbyggingu landsins og þróun lýðveldisins með virðingu.
Hjálpaðu konuni á fætur sem datt þegar strætóinn tók af stað!
Brostu til náungans!
Njóttu lífsins og því sem er að gerast akkurat á þeim tíma sem er, alltaf!
Mér var sagt að tala ekki ef ég hefði ekkert fallegt að segja (hefur ekki alltaf tekist en batnandi mönnum er best að lifa! right?)
Högum okkur ekki einsog rándýr sem rífa hvort annað í sig, kanski best að byrja á því að gera það allavegana ekki í fjölmiðlum eða á netinu.
Haha þegar ég hugsa um það ætti að snúa SOPA uppí síu á netið fyrir skítköst opinberra aðila :D
Mundu Kærleikan!
|
10.000 undirskriftir á sólarhring |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Bílar og akstur | 22.1.2012 | 11:51 | Facebook


talk2matty

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.